Velkominn!

”Skákklúbburinn 1968” var stofnaður árið 1968 og við höfum nýlega fagnað 40 ára afmæli okkar. Við erum enn að og erum einn af stærstu klúbbum í Danmörku. Meðlimir á skrifandi stundu eru 94.

Við erum að finna á hverju mánudagskvöldi frá ca 18:30 í Stúdentahúsinu, sem er hluti af háskólasvæðinu, beint á móti bókasafnsturninum. Öll aðstaða er hin ákjósanlegasta og finnst varla betri hér í landi, taflmenn og borð eru í hæsta gæðaflokki og allur aðbúnaður hinn besti.

Á keppnistímabilinu 2008 – 2009 keppa 5 lið frá okkur í fleiri deildum. Fyrsta liðið er  í aðaldeildinni, kölluð Xtracon - Skagligaen og keppir um Danmerkurmeistaratitilinn hvert ár. Liðið hefur komið fram fyrir Danmörku 2 sinnum við hinn eftirsótta Evrópuliðabikar. Annað liðið er í fyrstu deild, hið þriðja í Master League og svo framvegis. Þannig er klúbburinn til staðar í öllum mótum og keppnum, við erum allt á milli  byrjendum til alþjóðlegra meistara.

Á vorin teflum við um klúbbmeistaratitilinn í 8 manna grúppum samansettum eftir stigum og á haustin teflum við Swiss mót yfir 7 mánudaga. Fyrir utan mótin höfum við fyrirlestra þar sem sterkum meistara er boðið til að tala um ákveðið áhugavert efni eða tema. Við höldum líka fjöltefli þar sem við fáum tækifæri á að tefla við sterkann meistara. Bæði Bent Larsen og Peter Heine Nielsen hafa teflt við okkur, svona til að nefna einhverja.
 
Á árinu stöndum við einnig fyrir hraðskák, atskák og stigagefandi mótum sem eru öllum opin. Við höldum æfingar fyrir meðlimi, við höfum fengið tölvu og projector saman með ýmsum skákforritum og meiningin er að sýna beint frá helstu mótum þar sem það er mögulegt.

Þó það sé mikil áhersla lögð á alvöru skákiðkun hjá okkur, eru félagslegir atburðir jafn mikilvægir. Hið vinsamlega andrúmsloft Stúdentabarsins ( í sömu byggingu) er mikilvægur hluti af sögu klúbbsins okkar. Vert er einnig að geta “Julefrokost” þar sem við borðum, drekkum og gerum okkur glaðan dag.

Markmið okkar er að allir, burtséð frá skákstigastyrk, ættu að vera velkomnir í klúbbinn okkar. Við keppum að að vera áhugaverðasti, vinsælasti og vinalegasti skákklúbbur Danmerkur!

Hafið endilega samband við  webmaster@sk1968.dk
eða  strichter@mail.dk ef þið þarfnist íslenskra orða á málið.

Þorsteinn Richter
  • Engelsk
  • Svensk
  • Tysk
  • Islandsk
  • Spansk
  • Fransk
  • russisk